Efni
Fangaðu söguna þína í framúrskarandi gæðum með EOS 550D. Með sköpunarfrelsi til að fanga úrslitaskotið – sjáðu öll smáatriði sólarlagsins eða fylgdu hasarnum í fótboltaleik.
Segðu alla söguna
- 18 megapixla CMOS sensor
Frábært fyrir þá sem vilja prenta út stór plaköt eða kroppa án þess að tapa gæðum.
18 megapixla sensor EOS 550D er framúrskarandi við lág birtuskilyrði og skilar myndum með ótrúlega litlu suði.
- DIGIC 4 örgjörvinn skilar framúrskarandi litum & blæbrigðum
DIGIC 4 örgjörvinn frá Canon vinnur með CMOS sensornum til að skila 14 bita myndvinnslu þannig að þú færð mjúk blæbrigði og náttúrulega liti.
DIGIC 4 drífur einnig áfram háþróaða suðminnkun (Noise Reduction) þegar skotið er á háum ISO hraða.
DIGIC 4 tryggir að vélin er eldfljót að kveikja á sér og þú skoðar myndir í endurspilun á augabragði.
- High ISO fyrir léleg birtuskilyrði
Þegar birtan minnkar þá getur þú hækkað ISO sviðið í EOS 550D upp í 6400.
Útvíkkanlegt í ISO 12800 í litlum birtuskilyrðum þar sem óhentugt er að nota flass.
- Full HD vídeóupptaka
Í EOS 550D sameinast framúrskarandi kyrrmyndataka ásamt möguleika til að taka Full HD (1080p) vídeó.
Til að uppfylla þína sköpunargleði þá býður EOS 550D fulla handvirka stjórn og veljanlega ramma.
Þú getur skotið háhraða vídeó á 50/60 römmum í 720p þegar viðfangsefnið er á mikilli ferð.
HDMI tengi fyrir háskerpuendurspilun á vídeó og kyrrmyndum í öllum HD sjónvörpum.
Einnig samhæfð sjónvarpsendurspilun sem hægt er að stjórna með því að nota sjónvarpsfjarstýringuna.
- 7.7 cm (3.0“) 3:2 Clear View LCD skjár
Skoðaðu kyrrmyndir og vídeó á nákvæman hátt á 7.7 cm (3.0“) 3:2 Clear View LCD skjá.
1.040.000 punkta háupplausn fyrir aukna skerpu.
Skiptu yfir í Live View stillingu og notaðu rauntíma sjónarhorn til að taka myndir í erfiðari sjónarhornum.
- iFCL mælingakerfi
Nýr 63-zone tveggja laga mælinga sensor greinir fókus, lita og ,,luminance“ upplýsingar og þú færð nákvæma og stöðuga mælingu.
- Skjótvirkur stjórnskjár
Aðgengilegt með því að nota sérstakan hnapp sem veitir auðveldan aðgang að helstu stillingum þannig að þú getur tekið mynd um leið.
- Tengi fyrir auka hljóðnema
Tengdu auka hljóðnema við EOS 550D og fáðu betri hljómgæði með 3.5mm steríó tengi.
- Movie crop
Taktu VGA vídeómyndir og skilvirkum 7x aðdrætti.
Movie crop notar aðeins miðju hlutann af sensornum og þú getur tekið upp í fjarlægð án þess að þurfa að skipta um linsur.
- Skapaðu kerfi sem er jafnt einstakt og þú
EOS 550D er samhæfð við allar Canon EF & EF-S linsur og Speedlite EX flass-línuna frá Canon.
- Víðtækt úrval af aukahlutum
Eyecup Ef, E-series Dioptric Adjustment Lens with Rubber Frame Ef, Eyepiece Extender EP-EX15II, Angle Finder C.
Taska: Semi-Hard Case EH19-L & Canon Gadget töskulínan.
Flöss: Canon Speedlites + Macro-Ring-Lite, MR-14EX, Macro Twin Lite MT-24EX, Speedlite Transmitter ST-E2).
Rafhlöðuhald: BG-E8.
Remote Switch RS-60E3, Remote Controller RC-6.






