Pedromyndir ehf.

http://www.pedro.is/

Pedromyndir er ljósmyndaverslun staðsett á Akureyri. Við framköllun, seljum og vinnum með myndir. Gott úrval jólakorta og dagatala um hátíðirnar

Efni

Filmuframköllunarþjónusta 

Við tryggjum bestu mögulegu filmuframköllun hverju sinni. Véla- og tækjakostur er endurnýjaður reglulega til þess að tryggja viðskiptavinum okkar allra bestu gæði.

Góðar minningar eru dýrmætar, því leggjum við áherslu á að nota aðeins Kodak Royal pappír við framköllun á litmyndunum þínum. Því þannig endast þær lengur og litirnir haldast sterkir og fallegir.

 

VERÐLISTI FILMUFRAMKÖLLUN

35mm filma eða APS filma
24 mynda filma 2.005 kr.
36 mynda filma 2.410 kr.

Yfirlitsmynd fylgir APS framköllun.

Svart hvít framköllun
Við getum framkallað svart hvítt fyrir þig. Ef þú notar einhverja af þeim filmum sem gerðar eru fyrir litframkallara(C-41). T.d. Kodak BWC  filmuna. Eða bara venjulega lit filmu.
Brúntóna myndir
Brúntóna myndir er hægt að fá eftir öllum filmum. Það er lika hægt að framkalla stafrænar myndir í Brún/hvítu. Gefur þetta myndum oft hlýlegan og fallegan blæ.

 

Yfirlitsmynd
Frábær möguleiki fyrir þá sem eru orðnir þreyttir á að finna aldrei neitt á filmunum sínum. Heldur vel utan um filmusafnið og auðveldar eftirtökur þar sem hægt er að sjá myndefnið og myndnúmerið á einni yfirlitsmynd.

Hvítur kantur
Það er hægt að fá myndirnar sínar með hvítum kant, hvort heldur sem er APS eða 35mm. Skemmtilegur valmöguleiki sem setur svip á myndirnar þínar.

 


Eftirtökur mynda
Eftirtökur eru gerðar í 10 x 15cm. Veittur er magnafsláttur ef pantaðar eru 10 eða fleiri myndir eftir sömu frummynd eða eina af hverri eftir heilli filmu.
Útúrstækkun
Hægt er að stækka hluta úr mynd, t.d. úr 10 x 15 mynd og halda sama hlutfalli. Tilvalið til að losna við óþarfa umhverfi t.d. á jólakortamyndum.

Aukasett
Það getur borgað sig að fá strax við framköllun 2 myndir af allri filmunni. Það sparar þér tíma þar sem þú þarft ekki að bíða eftir eftirtökum, svo er það líka mikið ódýrara.
Til fróðleiks
Við eftirtöku mynda má gera ráð fyrir smávægilegum breytingum frá frummynd þar sem myndir eru lýstar með lampa sem er breytilegur dag frá degi og framkallaðar upp úr efnum sem einnig eru breytileg.

Einnig má gera ráð fyrir að filmur sem framkallaðar eru á einum stað og tekið eftir annarstaðar séu ekki eins.

 
Lagfæringar lagf_170
Hægt er að laga brot í myndum, skemmdir, bletti og fleira. Hægt er að taka fólk úr myndum og setja aðra í staðinn. Skeyta fleiri en einni mynd saman og taka út bakgrunna og setja inn nýja. Í þessu er það í rauninni hugmyndaflugið sem vegur mest, þú kemur með þær hugmyndir sem þú vilt láta framkvæma fyrir þig og við gerum verkið.

Ef þú átt einhverstaðar gamla mynd sem er orðin ónýt ef segja má sem svo þá ertu velkomin til okkar og við getum unnið hana fyrir þig og prentað síðan út á ljósmyndapappír. Þetta á líka við um hvað sem er, þú vilt t.d. bæta inn persónu á mynd hjá þér eða taka einhvern út, eins og við segjum, hugmyndaflugið hjá þér er það sem þarf.
Upp aftur

Vinstri hlið

Leturstærðir

Upp aftur
Netframköllun
Dagatöl
Strigamyndir
Upp aftur