Efni
| Stafræn framköllun | Filmuframköllun | Stækkanir |
|
|
|
|
FRÓÐLEGAR UPPLÝSINGAR UM STAFRÆNAR MYNDIR
Hér eru allar upplýsingar um stafrænu framköllunina okkar, hvernig best er að undirbúa myndir fyrir prentun og fleira gagnlegt.
Flestar stafrænar myndavélar skila frábærum myndum sem ekki þarf að eiga við. Myndir sem eru bjartar og skýrar á skjánum skila oftast frábærum prentgæðum. Myndir sem eru dökkar og litlausar geta lagast við framköllun. Við förum ávallt í gegnum allar stafrænar myndir sem við framköllum og reynum að ná því besta út úr hverri mynd.
Þegar þú pantar myndir þá mælum við með því að þú veljir myndastærð sem hæfir upplausn myndarinnar.
Í netframköllunarforritinu látum við þig vita ef upplausnin er ekki nægjanleg með því að birta aðvörun.
10x15 sm = 1181x1772 pixlar
20x30 sm = 2362x3543 pixlar
30x40 sm = 3543x4724 pixlar
Við framköllum myndirnar þínar á Noritsu framköllunarvélar. 3011. Við getum prentað myndir í allt að 30x90 sm. Við lýsum myndirnar með S-RGB á Kodak Royal ljósmyndapappír með lágmark 300 DPI upplausn og hámark 400 DPI. Myndir þurfa að vera í .jpg eða .psd formi.
Veldu myndastærð sem hæfir hlutföllum í myndinni þinni. Venjuleg myndastærð okkar er 10x15 sm sem er í hlutföllum 3 á móti 2. Flestar stafrænar myndavélar taka myndir í hlutföllunum 3 á móti 4 sem gerir myndastærð ca. 10x13 sm.
Val á upplausn mynda
Stærð myndar og gæði ráðast af valinni upplausn í myndatöku. Áður en mynd er tekin er gott að vera búinn að ákveða hvernig nota eigi myndina, í tölvuna, á netinu eða prenta hana út á pappír.
Góð regla er að taka alltaf mynd í hæstu upplausn því alltaf má minnka hana í tölvunni eftir á. Við segjum gjarnan, ekki fórna gæðum fyrir plássið á minniskortinu.
Hvernig á að geyma stafrænu ljósmyndirnar sínar?
Þegar myndir voru teknar á ljósmyndafilmu þurfti lítið að hafa áhyggjur af því að hægt væri að nálagst myndir í framtíðinni, svo lengi sem menn týndu ekki bæði filmum og ljósmyndum sjálfum.
Með tilkomu stafrænna myndavéla hafa margir látið nægja að vista myndirnar sínar á harða disknum í tölvunni. Slík geymsla án öryggisafritunar er afleit, vilji fólk geta skoðað myndirnar í framtíðinni. Enda mýmörg dæmi um fólk sem hefur glatað margra ára myndum (minningum) þegar harður diskur hefur skemmst. Enn aðrir hafa þó verið forsjálir og geymt myndirnar á geisladiskum(CD-R diskum).
Samkvæmt rannsókn hollenska tölvutímaritsins PC Active. kom í ljós að sumir CD-R diskar eru ólæsilegir eftir einungis tvö ár!
Öll þekkjum við tónlistar geisladiska og vitum að þeir endast vel, svo lengi sem þeir rispast ekki mikið osfrv.
En CD-R notar ekki nákvæmlaga sömu tækni, þótt margir haldi það. Í tónlistar geisladiskum og CD-ROM diskum er notað ál til að aðgreina 0 og 1. En í CD-R er notaður litur. Þegar CD-R geisladiskur er brenndur þá er litur á honum brenndur með laser geisla, þannig að hann verði dökkur og stendur fyrir 1, ef ekki er brennt á viðkomandi stað verður liturinn áfram ljós og stendur fyrir 0. Ef liturinn dofnar þá verður engin munur á 0 og 1 og lesarinn getur ekki lesið diskinn.
Ef þú vilt vera viss um að geta skoðað myndirnar þínar í framtíðinni þá er besta leiðin sem völ er á í dag að framkalla þær myndir sem þig langar að eiga í stafrænni framköllun á Kodak Royal pappírinn sem tryggir hámarks gæði og endingu á myndunum þínum.









