Efni
Ljósmyndanámskeið fyrir byrjendur á Canon EOS myndavélar
Þetta er fjórða árið sem er boðið upp á ljósmyndanámskeið fyrir byrjendur sem vilja læra vel á vélina sína og læra að taka betri myndir með Canon EOS myndavélum. Þú mætir með vélina þína og farið er yfir allar helstu stillingar vélarinnar.
Einnig er farið yfir undirstöðuatriði ljósmyndunar og tökustillingar við mismunandi aðstæður.
Glæsileg bók um ljósmyndun á Canon EOS sem var sérstaklega skrifuð fyrir þetta námskeið fylgir og nýtist við að læra á allar Canon EOS vélar.
Leiðbeinandi er Þórhallur Jónsson, námskeiðið er um 8 klst.
Verð fyrir námskeiðið er kr. 18.000,- og bókin Stafræn ljósmyndun á Canon EOS fylgir. Ef viðkomandi á þegar bókina kostar námskeiðið kr. 14.000,-
Næstu námskeið:
Reykjavík
Gunnámskeið (2 klst.) föstudaginn 11. maí hjá Nýherja fyrir þá sem eru með gjafabréf á EOS námskeið.
Akureyri:
Byrjendanámskeið: Næsta ljósmyndanámskeið á Akureyri sem eru þrjú kvöld eða 7-8 klst. verður haldið 7., 8. og 9. maí kennt er frá kl. 19:30-22:00 í Pedromyndum.
Grunnnámskeið: í Pedromyndum óákverðið
(Gjafabréf sem fylgdu EOS vélum um jólin gilda á þetta námskeið).
Egilsstaðir
Byrjendanámskeið: næsta dags óákveðin á Egilsstöðum kl. 10:00-17:30.Verð fyrir námskeiðið er kr. 18.000,- og bókin Stafræn ljósmyndun á Canon EOS fylgir. Ef viðkomandi á þegar bókina kostar námskeiðið kr. 14.000,-
Sauðárkrókur: Byrjendanámskeið: Lokið
Neskaupstaður
Byrjendanámskeið: 7.5 klst. Laugardaginn 28. apríl 2012
í björgunnarsveitarhúsinu. Lokið
Skrá mig á grunnnámskeið
Einnig er hægt að kaupa bókina í verslun Pedromynda á Akureyri ásamt gjafabréfi á námskeiðið sem er tilvalin tækifærisgjöf, hafðu samband í síma 462-3520 eða pedromyndir@pedromyndir.is
Hvað segir fólk um námskeiðið:
Umsögn um námskeið laugardaginn 3. október 2009
"Þetta var frábært námskeið - Þórhallur algjör snillingur og jólin hjá mér með vélina eftir námskeiðið, þvílíkt gaman. Mæli með þessu við alla eigendur Canon EOS véla. Þetta er nákvæmlega það sem maður þarf til að læra að nýta vélina til fullnustu. Takk kærlega fyrir mig…!"Andrés Erlingsson, þátttakandi á EOS byrjendanámskeiði í Reykjavík






