Efni
Að senda inn myndir
Hér er leiðbeiningar um hvernig framköllunarhugbúnaðurinn virkar. Tvísmelltu á "myndavélina".

Þá kemur upp gluggi þar sem þú slærð inn notendanafn og lykilorð, gott er setja hak í "muna eftir mér" þá þarf ekki að slá inn lykilorðið í hvert skipti sem forritið er notað.

Þá ætti forritið að opnast og þessi mynd að birtast á skjánum.

Þú smellir á gulu möppuna og finnur þær myndir sem þú vilt framkalla og hleður þeim inn í forritið.

Í forritinu getur þú stækkað út úr myndum,byrjaðu á að smella á þá mynd sem þú ætlar stækka út úr, þá birtist myndin á hvíta svæðinu. Svo notarðu stækkunarglerið, þegar þú ert búin að stækka út, þá geturðu stillt myndina af með því að smella á myndina og halda músartakkanum niðri og færa myndina til, að lokum smellirðu á "skærin".
Efst hægra megin eru valflipar fyrir stærðir og fjölda á myndum, þú smellir á einhverja mynd og þá geturðu breytt um stærð og fjölda.
Ef þú vilt fá sömu myndina í mismunandi stærðum þarftu að sækja myndina aftur í fyrir hverja stærð.

Þegar þú hefur lokið við að hlaða myndum inn og gera breytingar á myndum og velja fjölda og stærðir ef um það er að ræða þá smellirðu á "senda", þá opnast gluggi þar sem hægt er að setja inn athugasemdir eða skilaboð varðandi pöntunina, síðan smellirðu á "áfram".

Þá er komið að því að velja greiðslu og afhendindingarmáta, en hægt að velja um Staðgreiðslu, kreditkort eða póstkröfu, þegar því er lokið smellirðu á "áfram" og þá byrjar forritið að senda myndirnar.

Þegar sendingu er lokið ætti að opnast gluggi með yfirliti yfir þær myndir sem voru sendar. loks smellirðu á "Loka glugga"
Mundu að framköllun er besta varðveislan á á stafrænu myndunum þínum.






